Sjálfstæðismenn segja sigmund bíræfan

Í brýnu sló á milli stjórnarliða Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í gærdag eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins tilkynnti um leiðir til afnáms gjaldeyrishafta á landsfundi Framsóknarflokksins um nýliðna helgi. Telja margir þingmenn - og raunar stöku ráðherrar - úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins að Sigmundur Davíð hafi með því stolið senunni af fjármálaráðherra sem hefur málið á sinni könnu og hefði undir öllum venjulegum kringumstæðum átt að kynna það sjálfur. Samkvæmt heimildum Hringbrautar sögðu þingliðar úr hópi Sjálfstæðisflokksins mælinn vera fullan og réttast væri að endurskoða stjórnarsamstarfið á þessum tímapunkti; framkoma af þessu tagi væri bæði bíræfin í eðli sínu og þar fyrir utan móðgandi fyrir Bjarna og flokksmenn hans.


Eftir því var hins vegar tekið í gærdag þegar málið komst í hámæli og mönnum ekki ennþá runninn reiðin að Bjarni Benediktsson var hinn rólegasti yfir málinu og bað menn lengstra orða að anda rólega þótt honum sjálfum væri senuþjófnaður jafn augljós og öðrum þingmönnum.   


Krókur hans á móti bragði kom í ljós í dag samkvæmt sömu heimildum Hringbrautar, en þá lagði hann óvænt fram beiðni í ríkisstjórn um aukafjárveitingu til kaupa á gögnum úr skattaskjólum erlendis án þess að framsóknarmenn hefðu af því nokkrar njósnir.