Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hugsa Gunnari Braga Sveinssyni þegjandi þörfina eftir að hann afréð upp á eigin spýtur að setja Ísland á lista þeirra þjóða sem vilja þvinga Rússa til að láta af hernaði gegn nágrönnum sínum í vestri.
Heimildir Hringbrautar innanmúrs í flokknum herma að bæði þingmenn og ráðherrar flokksins vilji að ákvörðun utanríkisráðherra verði endurskoðuð, einungis þurfi að finna rétta tímapunktinn til að snúa af villiu hans vegar; alltof mikilir hagsmunir séu í húfi svo áframhald geti orðið á aðgerðum Íslendindinga í þessum efnum, en komið hefur fram að íslenskt atvinnulíf og þjóðarbú geti orðið af næstum 40 milljörðum ári, haldi Rússar innflutningsbanninu til streitu.
Samráð hefði þurft að hafa við forkólfa sjávarúvegsfyrirtækja vegna þessa máls, en það hafi ekki verið gert - og það sem meira sé; ráðherra hafi anað út í þessa aðgerð sína án þess að spyrja samstarfsflokk sinn í ríkisstjórn álits á málinu. Um einleik hans sé að ræða - og það gangi engan veginn þegar um svo stórt mál sé að ræða.
Og pirringurinn milli flokkanna er nú kominn upp á yfirborðið með orðum Bjarna Benddiktssonar formanns Sjálfsytæðisflokksins í frétt hér neðar á síðunni - og nú er aðeins spurt hvenær ákvörðun utanríkisráherra verði snúið við, í heild eða að hluta.