\"Ég hef til dæmis heyrt góða og gegna sjálfstæðismenn segja að Helgi Hrafn gæti vel verið í þeirra liði.\"
Þetta sagði Guðni T. Jóhannesson sagnfræðingur í viðtali sem birt var í DV í gær. Blaðið birti þá yfirgripsmikið viðtal við manninn sem talið er að gæti jafnvel sigrað Ólaf Ragnar í forsetakosningu ef Guðni fer fram. Sagnfræðingurinn er óhræddur við að tjá skoðanir sínar og fer víða um völl í viðtalinu.
Innan hreyfingar Pírata heyrist stundum að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, sé vinstri sinnuð en Helgi Hrafn meira til hægri. Ummæli Guðna renna stoðum undir þetta. Þau tvö hafa oftast verið nefnd sem skoðanaleiðtogar flokksins þótt enginn skilgreindur formaður sé fyrir hendi hjá Pírötum.
Í viðtali Hringbrautar við Katrínu Jakobsdóttur, vinsælasta stjórnmálamann landsins nú um stundir, sagði Katrín um síðustu helgi að tímabært væri fyrir Pírata að skilgreina sig betur og nefndi hún hægri og vinstri í þeim efnum. Sjálf sagði Birgitta Jónsdóttir í viðtali við Kvikuna á Hringbraut fyrir nokkru að Píratar teldu slíkar skilgreiningar ekki nútímalegar. Hörð viðbrögð urðu úr röðum Pírata á spjalli þeirra á facebook vegna ummæla Katrínar þar sem greina mátti þann tón að það væri ekki Katrínar að segja Pírötum fyrir verkum.
Guðni Th. segir í fyrrnefndu viðtali að Píratar eigi eftir að læra að stjórna. Hann telur ekki að nein kollsteypa yrði þótt þeir kæmust til valda en telur að fylgið eins og það hefur mælst í skoðanakönnunum undanfarið eigi eftir að síga eitthvað. Eitt sé að haka við andófs- og breytingaafl í skoðanakönnun en annað að greiða atkvæði í kjörklefa á kosningadegi.
Eigi að síður hafa þeir stjórnmálafræðingar sem Hringbraut hefur rætt við og beðið að spá fyrir um fylgi Pírata að jafnaði nefnt tölur þar sem 20% eru lægri mörkin. Kann svo að fara að fylgi þeirra reynist töluvert meira. Flest bendir til að Píratar verði annar af tveimur stærstum flokkum landsins að loknum kosningum en meðal hreyfingarinnar er lögð áhersla á breytingar á stjórnarskrá og að færa almenningi aukið lýðræði.