\"Ég er í sjokki,\" segir Óttar Proppé þingmaður. Ef marka má færslur á samfélag og bloggmiðlum í kvöld mælir Óttar Proppé fyrir hönd margra Íslendinga eftir Kastljósþátt dagsins þar sem afhjúpun 370 blaðamanna um skattaskjól var kynnt. Þar hefur vakið heimsathygli að forsætisráðherra þjóðarinnar, Sigmundur Davíð, er á listanum. Hann hefur ekki sagt satt um sína aðkomu að Wintris eftir því sem fram kom í viðtali sem sýnt var í dag.
Ummæli Óttars féllu í beinni útsendingu í kvöldfréttum Rúv að loknu Kastljósinu. Augljóst er að fara verður nú vandlega yfir þessi mál, segir Guðlaugur Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Varaformaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannesson, sér ekki að uppljóstrun dagsins veiki stöðu Sigmundar Davíðs. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, segir að ásýnd Íslands sé orðin skelfileg, íslensk stjórnmálstétt sé á bólakafi í undirferli. Það verði að gera þá kröfu til stjórnarþingmanna að þeir axli ábyrgð til að byggja upp nýtt samfélag, mikilvægt sé að stjórnarþingmenn snúist ekki í sjálfkrafa vörn fyrir óafsakanlegt athæfi.
Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, segir að ljóst sé að minnihlutinn verði að leggja fram vantraust á Sigmund á morgun og þingrof.
Tveir þjóðhöfðingjar eru á listanum um þá sem eiga félög í skattaskjólum. Annar er Pútín, hinn er Sigmundur Davíð.
Óttar Proppé er ekki einn um að lýsa sjokkinu. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, Elín Margrét Hallgrímsdóttir, segir í færslu á facebook: \"Ég er í sjokki. Ef ekki tekst að fá vitrænar skýringar á þessum gjörningum minna samflokksmanna á næstu dögum skilja leiðir.\"
Á Elín þar við þátt Bjarna Ben, Ólafar Nordal, Júlíusar Vífils bæjarfulltrúa og Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur sem öll fengu umfjöllun í Kastljósi vegna eignar þeirra í félögum á aflandssvæðum í blóra við hagsmunaskráningu.