Allt getur núna gerst innan Sjálfstæðisflokksins en einkum þó og helst ekkert. Það sýnist vera skoðun þeirra sem skrifa í samfélagsmiðlum um Sjálfstæðisflokkinn og innanflokksátökin þar á bæ. Enn finnst sem sagt enginn sem vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í borginni.
Þrjár vikur eru í prófkjörið. Hver líklegur kandídat af öðrum segir hvað hann ekki mun gera.
Unnur Brá Konráðsdóttir skrifar að hún fari ekki fram í borginni og skrifar um sína uppgjöf: \"Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki fram í leiðtogaprófkjöri.\"
Unnur Brár gefur þá skýringu á þessari ákvörðun að hún er með hugann við landsmálin og því sé rangt að snúa sér að sveitarstjórnarmálum.
Merkir þetta að Unnur Brá Konráðsdóttir er með djörf áform um formannsframboð sem hún kynnir skömmu fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins? Hver veit.
Nokkuð er líklegt að þrýst sé á Jón Karl Ólafsson um að gerast leiðtogi minnuhlutans í borginni. En því ætti Jón Karl að fara í slíka láglaunavinnu spyrja kunnugir?