\"Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi lýsir yfir fullum stuðningi við formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, og varaformann okkar, Ólöfu Nordal. Jafnframt lýsum við ánægju okkar með þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn sitji áfram í ríkisstjórn og geti þannig lokið þeim brýnu verkefnum sem nú er unnið að fyrir land og þjóð.\"
Svo segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í dag. Fram kemur að formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson mætti til fundarins ásamt ritara flokksins.
Enginn rökstuðningur fylgir ályktuninni.
Hringbraut er er einnig kunnugt um að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi fundað með þingeyskum framsóknarmönnum um helgina.