Eftir að tilkynning barst frá Jóni Kára Jónssyni, formanni félags sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi, í gærkvöldi, þar sem Bjarni Benediktsson er sagður hafa kæft undirskriftasöfnun gegn þriðja orkupakkanum í fæðingu, er ástandið innan Sjálfstæðisflokksins sagt afar eldfimt. Í tilkynningu sagði:
„Söfnunin fór gríðarlega vel af stað, en þegar formaður flokksins, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, lýsti því yfir við fjölmiðla fjórum dögum eftir að söfnunin hófst að viðhorf flokksmanna myndu engu breyta um stefnu þingflokksins í málinu þá hægði mjög á söfnuninni.“
Þetta er aðeins brot úr frétt DV.
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og orkupakkaandstæðingur með meiru, segir þetta alvarleg tíðindi frá Sjálfstæðisflokknum og spyr hvort þetta hafi verið tóm sýndarmennska þegar skipulagsreglum flokksins var breytt og kváðu á um kosningu meðal flokksmanna um tiltekið málefni, ef tiltekinn fjöldi undirskrifta næðist, eða 5000 talsins og þar af skulu 300 vera úr hverju kjördæmi landsins.
Hér má lesa fréttina í heild sinni.