Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Meirihlutinn er því fallinn.
Rúv segir svo frá:
Flokkurinn mælist með 28,3 prósenta fylgi. Samfylkingin er næst stærst með 26 prósent, svo koma Píratar með 11 prósent, Viðreisn 8,7 prósent, Vinstri græn 6,2 prósent, Miðflokkurinn 5,8 prósent og Flokkur fólksins 3,8 prósent. Samkvæmt þessari könnun verða því sjö flokkar með fulltrúa í borgarstjórn.
Sósíalistaflokkurinn er næstur með mann inn, flokkurinn mælist með 3,4 prósenta fylgi en 2,9 prósent sögðust ætla að kjósa Framsóknarflokkinn.