Íhaldið skiptir við vg á fylgi

Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 38 prósenta kjósenda í nýrri könnun MMR. Í síðustu könnun sem gerð var einnig nú í febrúar, var stuðningur stjórnarinnar 35 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi flokka sem eru á þingi eða 27 prósent. Vinstri grænir eru á ný næst stærstir með 24 prósenta fylgi. Flokkarnir skiptast nánast jafnt á fylgi frá því sem mælt var af MMR síðast eða 10.-15.febrúar sl.  Þá var VG með 27 prósent en Sjálfstæðisflokkur með 24 prósent.

Framsóknarflokkurinn mælist nú með rúmlega 12 prósent, Píratar með 11,6 prósent, Samfylkingin með 8,0 prósent og Viðreisn með 6,3 prósenta stuðning. Björt framtíð mældist með rúmlega 5 prósent.

Könnunin var gerð dagana 17. – 24. Febrúar sl.

Niðurstaða könnunar MMR síðan 10.-15.febrúar sl. verðandi fylgi stjórnarflokkanna er lítið breytt - nema hjá Sjálfstæðismönnum.