Erpur Eyvindarson rappari segir að sér muni alltaf þykja vænt um Katrínu Jakobsdóttur, en það sé bara ekki hægt að fara í samstarf með Sjálfstæðisflokknum án þess að skemmast af því.
Í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar mætti Erpur með Havana Club romm og útrunnið Gunnars remúlaði og blandaði þessu tvennu saman í glas sem myndlíkingu fyrir VG og Sjálfstæðisflokkinn.
,,Myndi einhver drekka þetta helvíti? Þú þarft að fara djúpt inn í ræsið í Grafarvoginum til að finna einhvern sem glussar þetta helvíti í sig… og þetta er það sem gerist allt of ,,fokking” oft að gott fólk fer og endar bara í einhverju versta Swingerspartý í heimi sem er eitt prósent forréttindaklíku, kvótakalla, einokunar...bara allt sem er slæmt eru þeir fulltrúar fyrir,” sagði Erpur.
Bjarni Ben á síðasta snúning
Erpur er ekki sem sagt ekki hrifinn af því hvert Vinstri grænir eru farnir eftir að þeir fóru í ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Erpur var í innsta hring VG þegar flokkurinn var stofnaður en hefur nú fjarlægst hann.
Hann segir að eftir síðustu kosningar hafi Sjálfstæðisflokkurinn verið kominn upp við vegg af því þeir höfðu enga kosti varðandi samstarf.
,,Bjarni Ben var á síðasta snúning og það vildi enginn leika við hann. VG töluðu eins og þeir vildu ekki leika við hann og Píratar sögðu bara hreint út að þeir ætluðu ekki í samstarf með Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingin voru bara harðir á því að fara ekki. Ef menn hefðu bara kosið aftur hefðu menn séð að það vill bara enginn leika við [Sjálfstæðisflokkinn]. Þeir verða að fara einir á róluvöllinn…í Garðabænum…en það eru reyndar líklega ekki róluvellir af því það er of sósíalískt,” sagði Erpur og hló.