Sjálfstæðisflokkurinn kominn niður í 20.8%

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með stuðning 20,8% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 3.-9. október. 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um hálft prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 12. september. Samfylkingin mældist með 16,7% fylgi sem er rúmum þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Píratar mældust með 12,7% fylgi sem er hálfu prósentustigi minna en í síðustu mælingu. Þá bætti Miðflokkurinn rúmu prósentustigi við fylgi sitt frá síðustu mælingum.

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/sjalfstaedisflokkurinn-staerstur/150304/