Sveinn Óskar Sigurðsson viðskiptafræðingur mun leiða lista Miðflokksins og óháðra í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Í tilkynningu frá Miðflokknum kemur fram að markmið framboðsins sé að ná fram hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins til að bæta kjör bæjarbúa, lækka álögur og efla þjónustu í Mosfellsbæ.
Sveinn Óskar er 49 ára, hefur BA-gráðu í heimspeki og hagfræði, MBA-gráðu og MSc-meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Í tilkynningunni segir að hann leggi mikla áherslu á að tryggja beri hagsmuni barnafólks og eldri borgara til framtíðar. Álögur á fólk og fyrirtæki verði að lækka í Mosfellsbæ og verður það grunnstefið fyrir og eftir sveitastjórnarkosningar.
Gagnrýnir Sveinn útsvarsprósentu í Mosfellsbæ sem hafi farið í 14,48% í tíð meirihluta Sjálfstæðisflokksins. Kallar hann á að lækka þurfi skatta, minnka yfirbyggingu og auka gæði við útboð og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins. Þá segist hann leggja áherslu á menntamál og að hlúð sé að starfsfólki og nemendum.
Sveinn Óskar gegndi áður trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en hann bauð sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar árið 2016. Þá var hann formaður Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu og sat í stjórn SUS um árabil. Hann hefur einnig verið formaður Sjálfstæðisfélags Mosfellinga.