Sjálfstæðisflokkurinn í sókn í borginni

Sjálfstæðisflokkurinn sækir verulega í sig veðrið í Reykjavík ef marka má nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í morgun, en þar mælist hann stærstu flokka með 35,2 prósenta fylgi og fengi fyrir vikið níu fulltrúa, tveimur fleiri en næststærsti flokkurin , Samfylkingi sem mælist með 27,2 prósenta fylgi.

Þetta er veruleg viðspyrna sjálfstæðismanna í borginni frá síðustu borgarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum þegar flokkurinn hreppti 25,7 prósent og einni meira fylgi en í kosningunum 2010 þegar hann fékk 33,6 prósenta fylgi.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins er þó ekki svipur hjá sjón frá því það var mest, 1990 í tíð davíðs Oddssonar borgarstjóra en þá sveif hann með himinskautum í ríflega 60 prósenta fylgi - og átti borgina.