Sjálfstæðisflokkurinn er með 21,6 prósent fylgi og hefur ekki mælst með minna fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup síðan í hruni, eða í nóvember 2008, þegar hann mældist með 20,6 prósent.
Fylgi Viðreisnar jókst um tvö prósentustig í júlí, samkvæmt Þjóðarpúlsinum. Mælist fylgi flokksins nú 12 prósent. Breyting á fylgi annarra flokka en Viðreisnar milli mælinga eru ekki tölfræðilega marktækar.