Vandi Sjálfstæðisflokksins er einkum tvennskonar; annars vegar er hann ekki lengur þessi breiði og víðsýni stjórnmálaflokkur sem hann var þegar stór hluti almennings gat mátað sig við hugsjónir hans og hins vegar er samkeppnin á hægri vængnum orðin meiri en áður.
Þetta er mat ritstjóranna Björgvins G. Sigurðssonar og Steingerðar Steinarsdóttur í Ritstjórunum þessa vikuna, en þar mæta þau galvösk til að rýna í helstu fréttamál líðandi stundar. Þau segja að gamli tíminn sé liðinn þegar Sjálfstæðiasflokkurinn boðaði stétt með stétt og barðist fyrir réttindum launþega ásamt því að vera alþjóðlega sinnaður. Ekkert af þessu sé lengur fyrir hendi - og við bætist að nýir hægri flokkar höggvi í skarð íhaldsins, Viðreisn og Miðflokkurinn ásamt raunar smælkinu á rasistalínunni sem býður nú fram í borginni.
Og þarna sé vandi Eyþórs Arnalds kominn sem gæti horft upp á 20 prósenta borgarstjórnarflokk ef fram heldur sem horfir, 40 prósentustiga minni en þegar best lét árið 1990.
Meðal annarra umræðuefna þáttarins að þessu sinni eru launakjör langskólagenginna á Íslandi, launaskandallinn í Hörpu, brjálæðið á fasteignamarkaði og ofbeldi innan íþróttafélaga gagnvart konum sem lítt eða ekki er tekið á.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 en eru einnig aðgengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.