Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að tapa fylgi samkvæmt nýrri könnun Zenter sem gerð var fyrir Fréttablaðið. Flokkurinn mælist aðeins með 20,5 prósent fylgi en var með 22,6 prósent í könnun í síðasta mánuði. Í kosningum 2017 hlaut flokkurinn 25,3 prósent atkvæða.
Miðflokkurinn bætir við sig 3,6 prósentum og mælist með 13,4 prósent. Í kosningunum 2017 fékk flokkurinn 10,9 prósent. Samfylkingin er næst stærsti flokkur landsins með 14,4 prósent, svipað og í síðasta mánuði. Píratar voru þá næst stærstir með 15,2 prósent en mælast nú með 12,3 prósent. Þá bætir Viðreisn við sig 0,7 prósent og Framsókn um 1,1, prósentustigi á milli kannanna.
Flokkur fólksins missir áfram fylgi og mælist nú með 3,2 prósent en fékk 4,3 prósent í júní. Aðrir flokkar fá 4,6 prósent og þar af fær Sósíalistaflokkurinn 2,7 prósent.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við Fréttablaðið:
„Inni á miðju kjörtímabili er almennt við því að búast að ríkisstjórnarflokkar gefi eitthvað eftir. Hafandi sagt það þá er það alveg augljóst að við erum ekki ánægð með að sjá tölur sem eru undir síðustu kosninganiðurstöðum.“