Sjálfstæðisflokkur að fara af miðjunni

"Núverandi ríkisstjórn var mynduð undir merkjum hægri þjóðernispopúlisma. Sjálfstæðisflokkurinn hefur eigi að síður reynt að varðveita ábyrga ímynd í ríkisfjármálum. Það hefur þó ekki dugað til," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli sínum á hringbraut.is.


Þessi fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir þar hiklaust: "Með samtengingu við þjóðernispopúlisma Framsóknar hefur Sjálfstæðisflokkurinn einfaldlega fjarlægst miðjuna." Samt virðist sem fæstir hafi áhuga á þessu daðri við þjóðernishyggjuna: "Nú þegar þetta kjörtímabil er hálfnað hefur fylgi ríkisstjórnarinnar hrapað eins og þeirrar síðustu og Framsókn misst tvo þriðju kjósenda sinna. Viljinn til  að  fylgja þjóðernispopúlismanum lengra fram um veg er horfinn."  


Þorsteinn les þetta út úr pólitíkinni í dag: "Ef merkja má einhverja málefnalega breytingu á þessu kjörtímabili sýnast stjórnarandstöðuflokkarnir horfa heldur meir til vinstri en áður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þar á móti fest sig enn frekar í þjóðernispopúlisma Framsóknar í utanríkismálum og peningamálum. Engin áform sýnast vera um að opna þá stöðu. Þeir sem lýsa nú yfir stuðningi við Pírata standa þarna mitt á milli."


Pistilinn má lesa í heild sinni hér á hringbraut.is.