Sjálfstæðisflokkurinn enn stærstur á nesinu

Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihlutanum, með fjóra bæjarfulltrúa af sjö. Samfylkingin fær tvo bæjarfulltrúa og Viðreisn/Neslisti einn. 

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 46,3 prósenta atkvæða og Samfylkingin tæp 30 prósent. Viðreisn með Neslistanum fékk 15,3 prósent.


Sjö manna bæjarstjórnin á Seltjarnarnesi verður svona:  

Sjálfstæðisflokkur: Ásgerður Halldórsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Sigrún Edda Jónsdóttir og Bjarni Torfi Álfþórsson.

Samfylking: Guðmundur Ari Sigurjónsson, Sigurþóra Bergsdóttir.     

Viðreisn/Neslisti: Karl Pétur Jónsson