Sjálfstæðisflokkur breytir ekki listum

Ekki er hefð fyrir því að framboðslistum Sjálfstæðisflokksins sé breytt eftir að prófkjör hafi verið haldið, segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður flokksins á Hringbraut í kvöld og því ekki við því að búast að breytingar verði gerðar. Það sé þannig þrátt fyrir að reglur séu skýrar og frambjóðendur í prófkjöri riti undir þær, um að sé kosning innan við 50 prósent eigi viðkomandi ekki sætið, ef svo má segja. Kosningin er ekki bindandi.

Sigríður Andersen, þingmaður gefur lítið fyrir þær skýringar að konum hafi vegnað illa í Suðvestur og Suðurkjördæmi um helgina, vegna kyns síns. „Þið verðir hreinlega að spyrja kjósendurna i kjördæmunum um það“, segir hún. Tómt mál sé fyrir Reykvíkinga að gerast spekingar í þeim efnum. Sigríður er gestur á Þjóðbraut ásamt Ragnheiði. Svo gæti farið að Sigríður yrði eina þingkonan sem tæki aftur sæti á þingi. Allar hingar yrðu nýjar, þar með talin Ólöf Nordal.

Gagnrýni hefur verið á að i Suðurkjördæmi séu þrír karlar í efstu sætum og í stærsta kjördæminu í Kraganum séu fjögur efstu sætin skipuð körlum.