Píratar ólíklega með íhaldinu

Smári McCarthy, oddviti Pírata í Suðurkjördæmi og einn stofnenda flokksins segir að flokkurinn sé nú þegar í þreifingum gagnvart öðrum flokkum um mögulega stjórnarmyndun. Krafa þeirra sé sú að samstarfsflokkarnir vilji kerfisbreytingar eins og upptaka nýrrar stjórnarskrár miðað við niðurstöðu stjórnlagaráðs, breytingar á vinnubrögðum Alþingis og algeran aðskilnað milli þingsetu og ráðherradóms. Hann efast um að Sjálfstæðisflokkurinn gæti fallið að kröfum Pírata og því ólíklegast að fara í stjórn með þeim.

Aðspurður hvort hann sé forsætisráðherraefni Pírata eins og títt er nefnt þessa dagana, segir hann ekki svo vera en sé til í að taka það hlutverk að sér muni þess þurfa. 

Smári er í þriggja manna viðræðunefnd Pírata vegna mögulegra stjórnarmyndunarviðræðna. Með honum er Birgitta Jónsdóttir, og Einar Brynjólfsson, oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi.