Samningur um málefni hefur tekist og verið undirritaður á milli Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Mosfellsbæ.
Haraldur Sverrisson oddviti Sjálfstæðisflokksins verður áfram bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Bjarki Bjarnason er oddviti Vinstri grænna sem undirritaði samninginn með Haraldi í byrjun vikunnar.
Flokkarnir fengu fimm af níu bæjarfulltrúum kjörna í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag og halda meirihlutasamstarfi sínu því áfram frá árinu 2006 eða undanfarin tólf ár.