Sjálfstæðisflokkur og píratar með sama fylgi

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur ekki tekið miklum breytingum frá því að Gallup mældi síðast en tæplega 38 prósent segjast styðja ríkisstjórnina í nýrri könnun.

Rúmlega 26 prósent kjósenda segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú og svipað hlutfall segist myndi kjósa Pírata. Þetta kemur fram í nýrri fylgiskönnun Gallup.

 Rúmlega 16 prósent styðja Vinstri græn, tæplega 11 prosent Viðreisn. Framsókn hefur nokkuð minni stuðning en Viðreisn eða 9 prósent. Samfylkingin fengið rösklega 8 prósend og 3 prósent Bjarta framtíð.

Um 1 prósent segist myndi kjósa aðra flokka, þ.e. Íslenska þjóðfylkingin mælist með 0,6 prósent, Dögun með 0,2 prósent, Alþýðufylkingin með 0,1 prósent og Flokkur fólksins með 0,1 prósent.

Næstum 11 prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7 prósent svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.