Forysta sjálfstæðisflokks er töpuð

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir í nýjum pistli sínum á hringbraut.is að á síðustu fimmtán árum hafi Sjálfstæðisflokkurinn gefið eftir forystuhlutverkið í utanríkismálunum. Hann hafi lengst af lýðveldistímann verið sterkasta límið í þeirri sameiginlegu utanríkisstefnu jafnaðarmanna, miðjumanna og hægrimanna á Íslandi sem vissi að vestrænni samvinnu. "Efnahagssamvinna Evrópuþjóðanna hefur þróast en Sjálfstæðisflokkurinn tók þá afstöðu að snúast gegn allri frekari þátttöku Íslands í þeirri framvindu. Þar með hvarf forystuhlutverkið og sterkasta límið þornaði upp," skrifar Þorsteinn.


Hann segir Samfylkinguna hafa reynt að ná þessari forystu til sín. "Það tókst hins vegar ekki," segir Þorsteinn og segir ástæðuna annars vegar þá að flokkurinn hafi ekki náð "þeirri stærð að geta orðið sú kjölfesta í pólitíkinni sem Sjálfstæðisflokkurinn var," en hins vegar hafi átök frjálslyndis og róttækni til vinstri gert það að  verkum að flokkurinn geti ekki nálgast jaðaratkvæðin á miðjunni. "Það er svipuð klípa og Sjálfstæðisflokkurinn er í gagnvart jaðaratkvæðunum hinu meginn við miðjuna," skrifar Þorsteinn.


Og hann heldur áfram: "Við slíkar aðstæður er forystan í utanríkismálunum áfram í lausu lofti." Þorsteinn segir því tómarúm vera að myndast á miðju stjórnmálanna. Samfylkingin hafi færst til vinstri á síðasta kjörtímabili og á sama tíma "ákvað landsfundur Sjálfstæðisflokksins að horfa meir til innsta kjarna flokksmanna en á breiddina í kjósendahópnum eins og löngum tíðkaðist."


Hann segir nýja flokka vera að taka við af gamla fjórflokknum sem varanlegt afl á miðju íslenskra stjórnmála með ríflega þriðjung atkvæðanna og séu samanlagt á stærð við gamla Sjálfstæðisflokkinn. "Þetta er grundvallar breyting," skrifar Þorsteinn og segir loks: "Sá flokkur sem á endanum verður kjölfestan í því að binda saman tvo eða fleiri flokka um grundvallaratriði á vegferð þjóðarinnar að nýjum aðstæðum í alþjóðasamfélaginu er líklegastur til að fylla stærstan hluta af tómarúminu á miðjunni. Gömlu flokkarnir eru ekki útilokaðir frá því að ná þeirri stöðu. Sennilega hafa þeir þó grafið sér of djúpar skotgrafir til að ná þangað. Gerjunin heldur því áfram."