Innanríkisráðherra leggur til að stofnuð verði sjálfstæð mannréttindastofnun hér á landi. Drög að frumvarpi þess efnis hefur verið birt á vef ráðuneytisins.
Lagt er til að stofnuð verði sjálfstæð og þjóðbundin mannréttindastofnun sem starfi á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar yrði að efla og vernda mannréttindi hér á landi eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá, lögum, alþjóðasamningum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum.
Stofnunin muni uppfylla kröfur sem gerðar eru í svo nefndum Parísarviðmiðum frá 1993 er þar er það talið skilyrði að almenningur geti leitað til sjálfstæðrar mannréttindastofnunar með mál sín.
Mannréttindastofnunin mynd meðal annars stjórnvöldum til ráðgjafar á öllum sviðum varðandi eflingu og vernd mannréttinda. Stofnunin getur ákveðið að birta skýrslur sínar einstaka mál. Hún á að fjalla um ástand mannréttindamála í landinu, vekja athygli stjórnvalda á hugsanlegum mannréttindabrotum og leggja fram tillögur að úrbótum. Hún á einnig að stuðla að umræðu um mannréttindi í fjölmiðlum. Hún yrði þó ekki úrskurðaraðili á sviði mannréttinda og ákvarðanir stjórnvalda eða einkaaðila verða ekki kærðar til stofnunarinnar. Mannréttindastofnun er hins vegar rétt að veita einstaklingum sem til hennar leita leiðsögn um hvernig mannréttindum verði framfylgt, þar með talið að leiðbeina um kæruleiðir hjá innlendum stjórnvöldum og alþjóðlegum stofnunum.