Sjálfkrafa skráningu verði hætt

Birgitta Jónsdóttir þingkona er fyrsti flutningsmaður frumvarps sem kveður á um að sjálfkrafa skráningu barna í trúfélögum og lífsskoðunarfélög verði hætt. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að í stað skráningar barna í þessi félög við fæðingu geti börnin skráð sig í þau á fjórtánda ári þegar þau hafa þroska og skilning á félagsþátttöku. Núverandi reglur séu einkum og sér í lagi til hagsbóta fyrir tréfélögin sjálf og þau lífsskoðunarfélög sem hafa verið að skjóta rótum hér á landi á síðustu árum. Birgitta minnir á í þessu efni að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna kveði einmitt á að börn skuli ekki vera þvinguð í félög án vitundar sinnar og þá hafi Jafnréttisstofa og Mannréttindastofa Íslands einnig ályktað í þessa veru.