Sjálkeyrandi bíll á vegum Uber ók niður konu í Arizona í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hún lést. Þetta kemur fram í frétt USA Today, þar sem segir einnig að atvikið gæti haft hamlandi áhrif á hraða þróun sjálfkakandi bifreiða.
Bíllinn var í sjálfkeyrslustillingu þegar slysið varð, en þó með öryggisökumann við stýrið eins og venjan er við tilraunaakstur af þessu tagi, að því er haft er eftir lögreglunnni í Tempe í Arzona þar sem slysið varð.
Uber sendi frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið heitir fullri samvinnu við lögreglu í málinu. Konan var að fara yfir götu utan merktrar gangbrautar um klukkan 10 í gærkvöldi að staðartíma.
Öllum yfirstandandi tilraunum Uber með sjálfkeyrandi bíla í Pittsburgh, San Francisco og Toronto hefur verið frestað um óákveðinn tíma í kjölfar banaslyssins.