Sjálfboðaliðar munu alltaf koma

Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri sagði á Hringbraut mörg ferðaþjónustufyrirtæki væru lítil og lítt burðug til að innleiða sérstök gæðakerfi.  Hún segir einnig í viðtalinu að eðli þess að vera sjálfboðaliði sé allt annað en að fá vinnuafl erlendis frá. Þetta verði að skilgreina betur til að fá á hreint hverjir eru jafnvel að misnota mannskap og hverjir eru að hýsa sjálfboðaliða og bjóða þeim hingað á þeirra eigin forsendum. „Ég sé ekki að þetta verði þurrkað up“, segir Ólöf og meinar að sjálfboðaliðar séu komnir til að vera hér á landi og hafi gert mikið gagn í mörg ár, svo sem í gerð göngustíga um allt land.

Ferðamálastofa vinnur að því að sem flest fyrirtæki innleiði gæðastaðla, til dæmis skýra verkferla í innra starfi sem og í umgengni við það sem í umhverfinu er. Vakinn nefnist þjónustan og staðlakerfið sem Ferðamálastofa vinnur með og veitir leiðbeiningar þeim sem reka fyrirtæki í bransanum. Sjötíu fyrirtæki eru þátttakendur í Vakanum og 79 fyrirtæki eru í úttektarferli. Farið er einu sinni á ári til fyrirtækja í Vakanum og starfsemin tekin út svo gæðavottunin haldist. Fyrirtæki fá merki Vakans sem gæðastimpil. „Ferðamenn skoða slíkt fyrst og síðan verðið. Það er alls ekki verðlagning sem hefur úrslitaáhrif á hvað ferðamenn velja sér“.

Sjálfboðasíðan WorkAway hefur verið mikið í umræðu. Ráðningarsamningar hafa verið gerðir við sjálfboðaliða sem verklýðsfélög hafa gagnrýnt og Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir ólöglegt að fá sjálfboðaliða til starfa í efnahagslegri starfsemi. Ólöf segir því brýnt að þessi aðskilja sjálfboðaliða frá venjulegu starfsfólki sem kemur erlendis frá.

Á íslandi er boðið upp á sjálfboðaliðastörf á yfir 200 stöðum. Borist hafa fréttir af því að sjálfboðaliðar séu látnir vinna kauplaust langa daga og verkalýðsfélög þurft að beita sér fyrir því að gerðir verði ráðningarsamningar við fólkið og þeim greitt samkvæmt kjarasamningum. Ólöf segir að húnt telji það í lagi að fólk komi hingað sem sjálfboðaliðar en það verði að horfa á veru þeirra hér útfrá þeirra forsendum og meira eins og Au pair. „Við höfum fyrirmyndir sem geta hjálpað okkur að skilgreina hvað er sjálfboðaliði annars vegar og hvað starfsmaður er hins vegar“, segir Ólöf á Hringbraut í kvöld. Sjálfboðaliðinn komi hingað til að upplifa eitthvað nýtt og spennandi. Vinnuveitandinn á því ekki að líta á hann sem venjulegan starfsmann. Ólöf bendir á að sjálfboðaliðasamtök hafi í mörg á komið hingað til lands og lagt göngustíga víða um náttúruna. Slíkt væri komið miklu skemur á veg hefðu slíkir hópar ekki komið hingað. Þeir komi þó ekki til að vinna hjá neinu sérstöku fyrirtæki.