"Framganga verkalýðsfulltrúa lífeyrissjóðanna í stjórnum þeirra fyrirtækja, sem eru að hækka laun stjórna og stjórnenda langt umfram það sem venjulegum launþegum býðst, er til skammar og getur ekki gengið," að sögn Aðalsteins Á. Baldurssonar, formanns verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík og eins helsta forsvarsmanns Starfsgreinasambandsins í samtali við Pál Magnússon í þættinum Þjóðbraut.
Þátturinn var frumsýndur í gærkvöld og er óhætt að segja að ummæli Aðalsteins í þættinum hafi vakið athygli, enda skefur hann þar ekki utan af hlutunum, jafnt inn á við og út á við.
Aðalsteinn hefur í reynd sprengt upp samstöðu Samtaka atvinnulífsins í kjarabaráttu vorsins, því fjöldi fyrirtækja á starfssvæði Framsýnar í Þingeyjarsýslum hefur lýst yfir áhuga á að ganga til samninga við félagið óháð samráði heildarsamtakanna.
Þáttinn er hægt að nálgast í heild sinni eða að hluta á hringbraut.is.