Sjáðu skattabreytingarnar fyrir árið 2019

Ýmsar samþykktar skattbreytingar munu koma til framkvæmda í ársbyrjun 2019. Hér verður farið yfir helstu efnisatriði þeirra. Nánari upplýsingar um einstakar breytingar er að finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa og öðrum skjölum á vef Alþingis.

Tekjuskattur einstaklinga og útsvar

Í ársbyrjun 2019 mun persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga taka breytingum. Persónuafsláttur hækkar um 4,7%, þar af um 3,7% vegna lögbundinnar verðlagsuppfærslu og um 1% í viðbót samkvæmt sérstakri lagabreytingu til bráðabirgða nú í desember. Þá verður hækkun fjárhæðarmarka milli skattþrepanna fyrir árið 2019 miðuð við vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu og verður því hækkunin 3,7% milli áranna 2018 og 2019. Fjárhæðarmörk milli þrepa hækka því úr 893.713 kr. í 927.087 kr. á mánuði. Skattþrepin verða áfram tvö og skatthlutföll tekjuskatts til ríkisins óbreytt.

Miðað við fyrirliggjandi ákvarðanir sveitarstjórna munu tvö sveitarfélög hækka útsvar sitt um áramótin en önnur sveitarfélög hafa útsvarið óbreytt. Meðalútsvar í staðgreiðslu verður óbreytt, 14,44%. Skattleysismörkin í staðgreiðslu hækka um 4,7% og verða rúmlega 159 þús.kr. á mánuði, þegar tekið er tillit til frádráttar

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/21/sjadu-skattabreytingarnar-fyrir-arid-2019-afengi-eldsneyti-utvarpsgjald-og-tobak-haekkar/

4%iðgjalds í lífeyrissjóð.