Sjáðu pabbi, ég er hérna líka!

"Hann var voðalega viðkvæmt strá og gat hagað sér eins og dyntóttur og dekraður krakki," sagði listakonan Elísabet Kristín Jökulsdóttir um föður sinn Jökul Jakobsson leikskáld og bætti við að eina stundina hafi hann sýnt henni stjörnur himinsins, en aðra horfið inn í eigin hugarheim og látið þá sem hún væri ekki til.


Jökull er eitthvert dáðasta leikskáld Íslendinga og var um margt einstakur listamaður. Dóttir hans var ófeimin við að segja frá samskiptum sínum við hann í Mannamáli fyrr í vikunni, en þátturinn hefur vakið mikla athygli fyrir alla þá bersögli og hispursleysi sem einkenndi frásögn Elísabetar, en sjálfur hefur Sigmundur Ernir, umsjónarmaður þáttarins lýst viðtalinu við listakonuna sem því persónulegasta sem hann hafi tekið á rösklega 30 ára fjölmiðlaferli sínum.


"Um tíma bjó ég sem barn hjá eldri systur minni á Ísafirði og þangað kom oft pabbi - og þá einmitt lét hann eins og ég væri ekki til. Þetta hafi mikil áhrif á mig; ég varð svakalega bæld og óörugg og varð sannfærð um að það væri eitthvað mikið að mér. Við sátum kannski saman þrjú í stofunni, en hann leit aldrei á mig eða talaði við mig og ég man að mig langaði helst að standa á fætur og öskra; sjáðu pabbi, ég er hérna líka!"


Listakonan rifjaði upp fleira úr lífi þeirra feðgina: "En ég lærði líka margt af honum. Hann tók mig oft með sér í leikhúsið og það voru mínar bestu stundir sem krakki. Á leiðinni milli heimilis og leikhúss var hann alltaf að skipta sér af. Hann sá kannski stráka vera að veiða dúfur og sagði þeim að fuglarnir ættu að fá að lifa. Hann stoppaði líka krakka á hjólum ef þau voru ekki með báðar hendur á stýri og sagði þeim að hjóla með gát. Og þetta kenndi hann mér; ég hef allar götur síðan verið mjög afskiptasöm."


Hún segir að ef til vill megi kalla samband sitt og föður síns einhvers konar ástar- og haturssamband; vissulega hafi hún verið með mjög brotna sjálfsmynd þegar hann féll frá árið 1978 þegar hún var tvítug. Eftir það hafi leiðin legið inn í myrka heima geðhvarfasýki og alkóhólisma sem kostaði hana bæði frumburðinn og sjálfræðið eins og hún lýsir á einstaklega hreinskilinn hátt í viðtalinu.


Hægt er að nálgast samtalið við Elísabetu Kristínu í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is.