Sjáðu myndina: var guðni að senda varaforsetanum skilaboð? „vel gert guðni“

Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor, birti áhugaverða mynd á Facebook-síðu sinni. Þar má sjá Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands með Pútin og svo varaforseta Bandaríkjanna Mike Pence.

Baldur bendir á það sem er athyglisvert við myndina: „Takið eftir regnbogaarmbandinu sem forseti Íslands ber. Það er því miður eitthvað mikið að í vinaríki okkar, Bandaríkjunum, þegar það þarf á sömu hvatningu að halda og stjórnvöld í Rússlandi til að virða grundvallarmannréttindi þegna sinna“.

\"\"

Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar undir myndina og segir armbandið perlað hjá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Ragnheiður segir: Á því stendur „Lífið er núna“. Guðni Th. hefur sýnt Krafti þann heiður að bera það frá því hann fékk það í janúar árið 2017. Það er ánægjulegt að það skuli vera í sumum litum regnbogans og minna þannig einnig á réttindabaráttu samkynhneigðra.

Þá hrósar Baldur einnig Guðna og segir:

„Vel gert Guðni. Það er einstaklega uppörvandi að fylgjast með samstöðu þjóðarinnar með réttindabaráttu samkynhneigðra og annarra hinsegin hópa í dag. Dreifum þessari mynd með sinn mikilvæga og góða boðskap um heiminn.“