Sigmundur Davíð Gunnlaugsson heldur fram að verið sé að nota Gretu Thunberg í pólitískum tilgangi. Þessu hélt hann fram í Silfrinu fyrr í dag á RÚV. Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar var einnig gestur í þættinum og sagðist hún óttast að ekki verði ráðist í nógu róttækar aðgerðir í loftslagsmálum. Þá sagði Þorgerður Katrín einnig:
Sigmundur Davíð sagði um loftslagsmál að þau snerust um sýndarmennsku.
„Hér á Íslandi er farið að moka ofan í skurði og búa til einhverjar kenningar um að það leysi loftslagsmálin [...] Allt snýst þetta um að sýnast. Það hittist eitthvað fólk sem að koma saman á einkaþotunum til þess að ræða um loftslagsmál og útskýra fyrir almenningi að hann þurfi að hætta þessum ferðum til Kanaríeyja og eigi leggja einkabílnum en svo fljúga hinir heim á einkaþotunni og undirbúa sig fyrir næsta sýndarfund.“
Þorgerður Katrín skaut inn í:
„Svona talar bara maður sem er í afneitun varðandi loftslagsmálin.“
Þá var Sigmundur spurður um skoðun sína á hinni 16 ára Gretu Thunberg. Sigmundur Davíð hafði þetta að segja:
„Mér finnst mjög óviðeigandi að nota barn í pólitískri baráttu á heimsvísu. Hún mætir þarna fyrir Sameinuðu þjóðirnar, nánast grátandi af skelfingu, sem var örugglega raunveruleg. Hún er ekki eina barnið því börn víða um lönd koma nú heim úr skólanum og halda að heimurinn sé að farast, sem hann er ekki.“
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar tók þá til máls:
„Ég held að Sigmundur Davíð sé, ef ekki loftslagsafneitunarsinni, þá er hann tortrygginn út í þetta, og hefur að auki farið vitlaust fram úr í morgun.“