Sjá fram á mikið fjárhagstjón vegna loðnubrests

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir að það myndi hafa gríðarleg áhrif á samfélagið í Vestmannaeyjum ef engar loðnuveiðar yrðu í vetur. Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur í sama streng og telur ljóst að ef loðna finnist ekki í nægjanlegu magni á Íslandsmiðum á yfirstandandi vertíð verði áhrifin mikil á mörg sveitarfélög. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

„Menn eru ekki úrkula vonar um að eitthvað finnist af loðnu og leyft verði að veiða, en þetta lítur ekki vel út og ekki annað hægt en að vera raunsær í þeim efnum,“ segir Sigurgeir Brynjar í samtali við Morgunblaðið. Hann bendir á að ef loðnukvóti verður ekki gefinn út á vertíðinni sjái samfélagið í Vestmannaeyjum fram á gífurlegt fjárhagslegt tap. Fyrir tveimur árum hafi t.d. loðna fundist um miðjan febrúar sem gaf íslenskum skipum um 190 þúsund tonna kvóta og áætlað hefði verið að sá afli gæfi um 17 milljarða króna í útflutningsverðmæti. Tæplega þriðjungur þeirrar upphæðar skipti fyrirtækin í Vestmannaeyjum gríðarlega miklu máli.

Bæjaryfirvöld uggandi

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur falið fjármálastjóra sveitarfélagsins að fara yfir fjárhagsleg áhrif loðnubrests á tekjur aðalsjóðs og hafnarsjóðs bæjarins og leggja fyrir bæjarráð. Ráðið telur að áhrifin yrðu mikil og slæm á mörg sveitarfélög þar sem uppsjávarvinnsla skipi mikilvægan sess.

„Óvíða er uppsjávarvinnsla meiri en í Fjarðabyggð og ljóst er að loðnubrestur mun hafa mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Þá er einnig mikið áhyggjuefni að ekki er búið að ljúka samningum um kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu, sem ekki síður hefur mikil áhrif á sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð,“ segir í fundargerð ráðsins frá því í gær.