Siv fékk 20 milljónir frá ráðuneyti

 Siv Friðleifsdóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra Framsóknarflokksins, fékk tæpar 20 milljónir króna frá velferðarráðuneytinu frá  upphafi ársins 2014. Katrín Jakobsdóttir þingmaður VG lagði fram fyrirspurn til Eyglóar Harðardóttur og birtast svörin á vef Alþingis í dag.

Katrín spurði: „Hversu miklu fé hefur verið varið til kaupa á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum fyrir velferðarráðuneytið á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra frá upphafi árs 2014? Hverjir hafa fengið greiðslur af þessum ástæðum og fyrir hvaða verkefni?

Í svarinu birtist svart á hvítu að Siv fékk 19,6 milljónir króna fyrir aðstoð vegna norræns samstarfs, formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni og vinnu í velferðarvaktinni. 

Fréttablaðið fjallaði fyrir  nokkru um kostnað vegna ráðgjafar- og sérfræðiþjónustu sem fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Guðfinna Bjarnadóttir, innti af hendi, Guðfnna fékk 70 milljónir frá tveimur ráðuneytum.

 

Hér fer listinn við svari Katínar Jakobsdóttur á eftir:

 

Fjárhæð 

Nafn 

Verkefni 

26.970 

Alþjóðasetur ehf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

20.917.134

Analytica ehf. 

Ráðgjöf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

93.376 

Andrés Júlíus Ólafsson 

Uppfærsla neysluviðmiða. 

4.400.000 

Argus ehf. 

Fjölmiðlaráðgjöf. 

2.878.571 

Ágúst Bjarni Garðarsson 

Vinna vegna nefndar um stjórnsýslu á sviði félagsþjónustu og barnaverndar. 

1.124.700 

Árnasynir sf. 

Kynningarstörf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. Þýðingar og túlkaþjónusta. 

312.940 

Björn Matthíasson 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

2.400.000 

Capacent ehf. 

Ráðgjöf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

300.000 

Creditinfo Fjölmiðlavaktin ehf. 

Viðmælendagreining. 

1.542.544 

EC Consulting ehf. 

Ráðgjöf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

2.247.433 

Evrópulög ehf. 

Ráðgjöf vegna Íbúðarlánasjóðs. 

65.000 

Finnur Torfi Gunnarsson 

Ráðgjöf við jafnréttismál. 

104.500 

Framkvæmdasýsla ríkisins 

Ráðgjöf vegna húsnæðismála stofnana. 

1.813.293 

Góð samskipti ehf. 

Ráðgjöf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

25.000 

Guðbjörg Lilja Hjartardóttir 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

5.893.600 

Hagstofa Íslands 

a) Rannsókn á launamun kvenna og karla.
b) Rannsókn á stöðu leigjenda og húseigenda. 

15.072.113

Háskóli Íslands 

a) Rannsókn á stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði.
b) Rannsókn á fjölgun ungra öryrkja.
c) Greining á tiltækum rannsóknum á stöðu fatlaðs fólks á Íslandi.
d) Úrtakskönnun á stöðu þeirra sem misstu húsnæði á Suðurnesjum.
e) Vinna vegna framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks.
f) Þýðingar og túlkaþjónusta. 

225.000 

Helgi Tómasson 

Umsögn um launakannanir. 

164.576 

Ingegerd Hedvig S. Narby 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

258.387 

Ingimar Einarsson 

Vinna vegna formennsku Íslands í norrænu samstarfi. 

81.484 

InterCultural Ísland ehf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

21.794 

Jafnréttishús ehf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

3.133.090 

Jón Benedikt Björnsson 

Eftirlit með meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu. 

24.949.269

KPMG ehf. 

Aðstoð við tillögu- og frumvarpsgerð vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

6.094.000 

Landslög slf. 

Aðstoð við frumvarpsgerð vegna framtíðarskipan húsnæðismála. Ráðgjöf vegna Íbúðarlánasjóðs. 

223.617 

Landspítali 

Vinna vegna flutnings á málefnum aldraðra. 

740.693 

Lára Kristín Sturludóttir 

Ráðgjöf. 

558.960 

LB Consulting ehf. 

Velferðarvaktin og vinna við norrænt samstarf. 

591.600 

LEX ehf. 

Ráðgjöf vegna atvinnuleysistrygginga. 

434.343 

Libreta ehf. 

Ráðgjöf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

81.247 

Nordisk Ministerråd 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

22.785 

Salvör Aradóttir 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

222.948 

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

70.000 

Sigurjón Unnar Sveinsson

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

19.670.014

Siv Friðleifsdóttir 

Aðstoð vegna norræns samstarfs, formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni og vinna í velferðarvaktinni. 

1.205.740 

Skjal þjónusta ehf. 

Rannsókn á velferðarvaktinni. Þýðingar og túlkaþjónusta. 

3.780.000 

Snævarr slf. 

Ráðgjöf um jafnréttismál. 

44.000 

Stanislaw Jan Bartoszek 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

737.100 

Sveinn Björnsson 

Vinna við úttekt á STARF. 

333.960 

Sverrir Hans Konráðsson 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

55.201 

Sýningakerfi ehf. 

Kynningarstarf. 

1.626.840 

Sænska félagsmálaráðuneytið 

Vinna vegna norrænna velferðarvísa. 

608.400 

Taktík ehf. 

Kynningarstarf vegna framtíðarskipan húsnæðismála. 

2.090.651 

Talnakönnun hf. 

Ráðgjöf vegna endurskoðunar almannatrygginga. 

490.720 

Túnfiskar sf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

12.000 

Velferðarsvið Reykjavíkur

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

28.000 

Yates þýðingar slf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

41.424 

Ylva Hellerud 

Þýðingar og túlkaþjónusta. 

108.900 

Þjóðskrá 

Sérvinnslur úr fasteignaskrá. 

249.375 

Þorsteinn Magnússon 

Vinna vegna víxlverkana. 

1.332.372 

Þýðingarstofa JC ehf. 

Þýðingar og túlkaþjónusta.