Sitjandi forseti sigrar alltaf

Óhætt er að segja að um ekkert sé meira rætt meðal íslensku þjóðarinnar í augnablikinu en þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að gefa enn eina ferðina kost á sér til embættis Forseta Íslands en ákvörðun um það tilkynnti forsetinn á blaðamannafundi rétt í þessu.

Einn þeirra sem nefndur var við framboð er Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Í grein sem Guðni skrifaði í septmber sl nokkrum dögum eftir þingsetningarræðu forsetans segir Guðni m.a. að eftir þingsetningarræðu forseta fékk hann yfirburðafylgi í skoðanakönnun Útvarps Sögu, þótt óvísindaleg væri, og hver einasti maður sem hringdi inn í símatíma hjá Reykjavík síðdegis, kvaðst myndu styðja Ólaf, byði hann sig fram á ný.

\"Í útvarpinu lagði ég líka áherslu á þessa kenningu hér: \"Sitjandi forseti sigrar alltaf\". Hún er í grófum dráttum sú að kjósi forseti að bjóða sig fram sé langlíklegast að hann hafi sigur, muni njóta þess að vera á embættisstóli og fólki þyki ekki við hæfi að velta honum úr sessi, að hann geti dregið víglínurnar dálítið sjálfur, valið hvað kosningarnar snúist um og þar fram eftir götum.\"

Ef ráða má að Guðni sé enn sömu skoðunar og sl. haust er hann skrifaði grein sína má e.t.v. teljast ólíklegra en ella að hann fari fram gegn sitjandi forseta.