Sísvangar í Seljahverfi slá í gegn: „Við elskum þær“

Sísvangar endur hafa vanið komur sínar fyrir utan verslun Krónunnar í Seljahverfi á hverjum degi í rúman mánuð. Þær hafa vakið mikla athygli íbúa og starfsmanna verslunarinnar.

Fréttablaðið greinir frá.

Laura Pasztor, verslunarstjóri Krónunnar í Seljahverfi, segir endurnar svangar og að viðskiptavinir hafi verið að gefa þeim að borða.

Gæfar endurnar hafa vakið athygli íbúa. „Fólk segir að þær viti hvar eigi að sníkja mat,“ skrifar íbúi nokkur í umræðum um endurnar á samfélagsmiðlum. „Jú, í lágvöruverðsverslun.“

Laura segist halda að mögulega sé ekki öllum viðskiptavinum jafn skemmt yfir öndunum sem geti verið nokkuð ágengar.

„En langflestir elska þær. Þær virka líka þannig á okkur að þær virðast vera kátar og margir hafa keypt brauð hérna til að gefa þeim og aðrir hafa tekið myndir af sér með þeim hér, enda þyrpast þær að fólki ef það gefur þeim einhvern gaum,“ segir Laura.

„Við elskum þær. Þær eru líka svo sætar og mjög almennilegar, við erum farin að verða þeim mjög kunnug. Stundum labba þær meira að segja inn í búðina og þá höfum við þurft að reka þær út,“ segir Laura hlæjandi í samtali við Fréttablaðið.