Halldóra Mogensen, sem er hluti þingflokks Pírata, er minnst spennt fyrir að mynda stjórn, þar sem annar eða báðir núverandi stjórnarflokkar, eiga aðild að. Hún segir þá flokka þurfa að fá frí frá völdum í landinu.
Halldóra var meðal gesta Sigurjóns M. Egilssonar í laugardagsþætti Þjóðbrautar, sem var í beinni útsendingu í útvarpi Þjóðbrautar, í gærmorgun, laugardagsmorgunn milli tíu og tólf, að venju.
Halldóra segir að ekki megi gleymast hvers vegna var kosið í haust. Það var gert vegna þess að forystufók í báðum stjórnarflokkunum tengist skattaskjólum og best fari á að aðrir stjórnarmálaflokkar taki við stjórn landsins.
Halldóra er bjartsýn á að Birgittu Jónsdóttur, og öðrum Pírötum, takist að mynda ríkisstjórn. Hún sagði að ekki liggi mikið á.