Í fjörlegum sjónvarpsþætti Sirrýjar, Lífsins list á Hringbraut í kvöld verður fjallað um tvær sérstakega áhugaverðar skáldsögur, auk þess fjölþ´jóðlegur hópur söngvara verður tekinn tali - og tónum.
Úti við Gróttuvita segir Sirrý frá bókinni Ljós af hafi sem slegið hefur í gegn víða um heim. Sagan hefur farið siguför um heiminn og var í meira en ár á metsölulista New York Times. Guðni Kolbeinsson þýddi. Sagan segir frá því að báti skolar á land á afskekktri eyju úti á reginhafi. Um borð eru dáinn maður og grátandi barn. Vitavörðurinn og kona hans standa frammi fyrir erfiðu vali. Reglurnar eru skýrar en freistingin til að brjóta þær verður allri skynsemi yfirsterkari.
Og á ítalska veitingastaðnum Horninu verður rætt um ítölsku bókina Framúrskarandi vinkona. Þær Guðrún Vilmundardóttir útgáfustjóri og Brynju Cortes Andrésdóttir þýðandi ræða um þessa vinsælu Napólí-sögu eftir Elenu Ferrante sem er einn vinsælasti höfundur Ítalíu um þessar mundir. Hún fer huldu höfði og enginn veit í raun hver hún er þrátt fyrir velgengnina.
Og heilsað verður upp á dansk-íslenska fjölskyldu á Seltjarnarnesi sem kann að krydda tilveruna. Þau fá útrás fyrir sköpunarkraftinn með því að rækta sitt eigið chilly í stofunni.
Olga Vocal Ensamble er fjölþjóðlegur hópur ungra söngvara sem vakið hefur verðskuldaða athygli á Íslandi. Söngvararnir sem eru frá Íslandi, Hollandi og Rússlandi eru allir nemendur Jóns Þorsteinssonar söngkennara í Hollandi. Og hafa þeir fengið boð um að syngja í Bandaríkjunum. Næstu tónleikar eru þó í Flateyjarkirkju 1.ágúst og Sirrý og Friðþjófur Helgason myndatökumaður hittu sönghópinn Olgu á æfingu.
Lífsins list er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.