Sirrý spyr; hvað er eiginlega sexý?

Í næsta þætti af ,,Fólk með Sirrý" sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 20.00 er spurt; ,,hvað er eiginlega sexý?" Góðir gestir koma í heimsókn og ræða um staðalímyndir og siðfræði kynlífs.


Meðal gesta þáttarins er Bjarni Karlsson sem var sóknarprestur í 25 ár en er nú með mastersgráðu í siðfræði kynlífs og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir sem kennir kynjafræði í Borgarholtsskóla. Þau koma ásamt fyrrverandi og núverandi nemendum Borgarholtsskóla og tala um kynlífsiðfræði og hvað þykir sexý í nútímasamfélagi. 


Fram kemur í þættinum að steríótýpur úr Hollywoodkvikmyndum og klámiðnaðinum hafa neikvæð áhrif á bæði kynin og minnka hamingju og lífsgæði fólks að mati allra gestanna. ,,Jafningjatengsl og jákvæð afstaða til líkamans og getu hans til að miðla gæðum" eru lykillinn að góðu kynlífi segir Bjarni Karlsson. ,,Það er ekki myndin sem klámiðnaðurinn sýnir." 


Elmar Ægir Sigurðsson, Annie Marin Guðmundsdóttir og Elías Arnar Hjálmarsson eru öll ungir feministar og vara við þeim skilaboðum og ranghugmyndum sem klámiðnaðurinn sýnir. ,,Drengir byrja oft að horfa á klám 11 ára gamlir og það sem þeir sjá mótar þá og fyllir þá ranghugmyndum sem fylgir þeim úr í lífið. Það skapar frammistöðukvíða hjá karlmönnum" segir Annie. 


Í lok þáttar kemur Þórhalla Andrésdóttir sjúkraþjálfari með hollráð eins og vanalega undir loks hvers þáttar. Hún svarar spurningunni; ,,hvað gerir þú til að láta þér líða vel?". Þórhalla er 4 barna móðir í annasömu starfi. Hún byrjar hvern morgun, 365 daga ársins, á morgunrútínu, teygjum og sítrónudrykk sem eykur vellíðan. Hún fer líka mikið á hvolf og mælir með því að fólk standi á höndum til að auka blóðflæði og vellíðan. 


Fólk með Sirrý eer frumsýnt sem fyrr segir klukkan 20.00 í kvöld.