Afrekasýning kvenna á Íslandi stendur yfir í Ráðhúsinu þennan mánuðinn. Í þættinum Lífsins list í kvöld ganga Sirrý og Steingrímur Þórðarson myndatökumaður um fjölbreytta sýninguna undir leiðsögn Sóleyjar Tómasdóttur, forseta borgarstjórnar.
Sýningin teygir anga sína um allt Ráðhúsið, inn á kvennaklósett, matsal og upp um alla veggi. Eins og vel kemur fram í þættinum er þetta ögrandi og fræðandi sýning sem enn tekur breytingum og opið er fyrir nýjar uppákomur og hugmyndir á Afrekasýningunni.
Í síðari hluta þáttarins er bankað upp á hjá Höllu Kjartansdóttur þýðanda. Halla er íslenskukennari sem tók sér hlé frá kennslustörfum og hélt til Ítalíu að læra ítölsku en fékk tilboð um að þýða sakamálasögur. Hún hefur meðal annars þýtt allar bækurnar um Lísbet Salander eftir Stieg Larson. Og einnig þá nýjustu úr smiðju Larson, Það sem ekki drepur mann, eins og hún nefnist. Í þættinum ræðir Halla átakasöguna á bak við sakamálasöguna nýju.