Hvernig komum við í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum? Þetta er meginspurningin í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut í kvöld, en hann hefst klukkan 20.00 og varir í 50 mínútur.
Hópur sérfræðinga sem lætur sig þessi mál varða kemur fram og gefur góð ráð um forvarnir og hvað foreldrar þurfa að segja börnum sínum til að draga úr hættunni á því að þau verði fyrir kynferðislegri misnotkun. Sigríður Björnsdóttir frá félaginu Blátt áfram segir meðal annars frá því hvers vegna börn segja ekki frá því þegar þau eru beitt misrétti í þessum efnum - og einnig hvers vegna fólk sér oft ekki það sem á sér stað næstum því fyrir framan nefið á því.
Fleiri gestir ræða málið í þættinum, svo sem Ólafur Bragason sálfræðingur sem vinnur með gerendum, Þorbjörg Sveinsdóttir frá Barnahúsi, Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar og Auður Sigurðardóttir námsráðgjafi í Garðaskóla.
Umræðan í þættinum er á breiddina, en þar er meðal annars velt upp þeirri spurningu hvort hætta sé á að við séum að ala á ótta og allir séu að leika löggur.