Sirrý ræddi breytingaskeiðið í gær

Breytingaskeiðið í allri sinni mynd var til umræðu í þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld en þar er á ferðinni umræðuefni sem lengst af hefur legið í þagnargildi þar sem það þykir full til viðkvæmt.  

Í þættinum svaraði Arnar Hauksson, kvensjúkdómalæknir ýmsum spurningum um þetta merkilega skeið í lífi kvenna og ræddi málin ásamt þeim Halldóru Bjarnadóttur, hjúkrunarfræðingi og Margréti Jónsdóttur Njarðvík, formanni Félags áhugafólks um breytingaskeiðið. Þau fóru raunar á kostum í þættinum sem hægt er að skoða hér á hringbraut.is og upplýstu um ýmislegt sem mörgum finnst vera algert feimnismál. 

Spurt var: Breytingaskeiðið, er það sjúkdómur? Og er nema von að spurt sé því auglýstar eru svo margvísleg lyf og vörur fyrir konur á miðjum aldri að ætla mætti að þetta tímabil sé sjúkdómur. Og fara karlmenn líka á breytingaskeið? Þurfa þeir hormóna? Hverjir eru kostir hormóna og hverjir eru gallarnir?

Það var margs að spyrja, en svörin voru allt í senn fróðleg, trúverðug og skemmtileg.