Sirrý með ofurkonur í gærkvöld

Sjónvarpskonan Sirrý spurði í þætti sínum á Hringbraut í gærkvöld hvort íslenska ofurkonan væri ennþá til. Fyrir nokkrum árum hafi verið mikið talað um þessa manngerð sem talin var þjökuð af streitu og þreytu en vildi gera allt vel og gerði þær kröfur til sín að vera óaðfinnanleg og glæsileg á öllum sviðum. En er hún enn til? 


Í þættinum, sem var frumsýndur klukkan 20.00 í gær var rætt við konur sem eru hámenntaðar, gegna krefjandi störfum, eru jafnvel í doktorsnámi með vinnu, eiga nokkur börn og vinna ýmis önnur störf svo sem að skrifa bækur, fræða um heilsu og standa fyrir heilsusamlegum viðburðum fyrir foreldra og börn. En hvernig fara þær að þessu öllu? Hvaðan fá þær orkuna og hvaða fórnir þurfa þær að færa? Ekki er hægt að gera allt í einu. Um þetta ræddu þær Lára G. Sigurðardóttir læknir hjá Krabbameinsfélaginu, en hún er líka í doktorsnámi í lýðheilsufræðum, Sigríður Arna Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu en hún er ógift með þrjú börn og Kristín Sigurðardóttir bráða- og slysalæknir.


Í þættinum voru líka konur sem brátt eru að byrja starfsferil sinn, þær Ástríður Viðarsdóttir, Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir og Stella Rún Guðmundsdóttir. Yngsti gesturinn var hún Vala, átta mánaða, sem var við hæfi, því konur á framabraut þurfa einatt að hafa börnin hjá sér þótt önnur verkefni séu ærin. 


Fólk með Sirrý var frumsýnt sem fyrr segir klukkan 20.00 á Hringbraut í gærkvöld er hægt að horfa á með því að smella hér: