Sirrý kynntist kulnun í starfi

Sjónvarpskonan Sirrý fjallaði í gærkvöld um kulnun í starfi í þætti sínum Fólk með Sirrý, en þættirnir sem hafa verið sýndir á þriðjudagskvöldum, færast nú yfir á miðvikudagskvöld og viðtalsþættirnir Mannamál, sem þá voru sýndir, verða framvegis á sunnudagskvöldum.

Í þætti gærkvöldsins var rætt í þaula um það hvernig fólk getur brunnið út í starfi, en að sögn þeirra sem til þekkja er það mun algengara hjá stéttum á borð við grunnskóla- og leikskólakennara, hjúkrunarfræðinga og lögreglumenn en fólk hefur almennt haft á tilfinningunni.

Gestir þáttarins voru Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði sem hefur hjálpað ótölulegum fjölda fólks sem glímt hefur við kulnun í starfi, Ómar Sigurðsson, prentsmiður sem hefur kynnst því á eigin skinni hvernig er að brenna út og Auður Bjarnadóttir, leikstjóri og jógakennari sem varð að breyta um lífsstíl þegar hún var komin í þrot með daglegar vinnuvenjur sínar.

Fólk með Sirrý, sem framvegis verður á miðvikudagskvöldum, er alltaf aðgengilegt á hringbraut.is eins og aðrir þættir stöðvarinnar.