Í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý í kvöld er rætt um rifrildi, deilur og sættir para og hjóna. Gestir Sirrýjar starfa allar við að sætta fólk, fá fólk til að tala saman og hlusta á hvert annað.
Annetta A. Ingimundardóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur notar dáleiðslu til að fá pör til að komast upp úr hjólförum ósættis, hlusta á hvert annað og tala saman. Sigga Dögg Arnardóttir, kynfræðingur vinnur mikið við að hvetja fólk til að tala saman og ætlast ekki til að bólfélagi lesi hugsanir. Lilja Bjarnadóttir, lögfræðingur er sérmentaður sáttamiðlari og starfar fyrir fyrirtæki við að sætta fólk. Þær ræða um helstu deilumál fólks og hvernig fólk er oft að rífast um það sama árum saman.
\"Þetta er líflegur þáttur um hagnýtt málefni sem snertir hvert heimili,\" segir Sirrý um efni þáttarins, en í lok hans fer hún í heimsókn á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð til að skoða hvernig brjóstaskoðun gangi fyrir sig og spyrja hvort skoðunin sé sársaukafull?
Í þessum hluta þáttarins er farið í gegnum skoðun á nokkrum mínútum, en sérfræðingar félagsins hvetja konur til að koma reglulega í skoðun:\"Það hefur borið á því að eftir bleikan október muna konur ekki eins vel eftir því að panta tíma í skoðun en árvekni gagnvart krabbameini er ekki bundið við ákveðinn mánuð heldur þurfa konur að vera stöðugt á verði,\" segir Sirrý og hvetur hér kynsystur sínar til dáða, allan ársins hring.
Fólk með Sirrý er frumsýnt klukkan 20:00 í kvöld.