Sirrý gengin til liðs við hringbraut

"Það er vor í lofti og ég er óskaplega spennt yfir því að hefja störf á Hringbraut," segir fjölmiðlakonan Sirrý, Sigríður Arnardóttir sem gengið hefur til liðs við Hringbraut og mun birtast áhorfendum í næsta mánuði þegar dagskrá stöðvarinnar af frumsýndu íslensku efni verður lengd að mun. Sirrý mun stjórna vikulega tveimur ólíkum þáttum, Fólki með Sirrý sem fjallar um mannrækt og mannlíf og Lífi & list þar sem menningar- og listalíf landsmanna verður grandskoðað með góðum gestum í myndveri.


"Mér finnst Hringbraut vera metnaðarfullt framtak á fjölmiðlamarkaði og kann vel að meta gildi stöðvarinnar, mannvirðingu, umburðarlyndi og jafnrétti, en þá ekki síður hvað stöðin leggur mikla áherslu á að fá til sín reynslumikið fólk. Ég hlakka afkaplega mikið til þess að vinna í þeim góða hópi."


Sirrý hóf blaðamennsku 19 ára gömul á Þjóðviljanum og fagnar 30 ára fjölmiðlaafmæli í ár. Hún hefur unnið jöfnum höndum sem blaðamaður og ritstjóri, útvarpskona og sjónvarpsmaður, m.a. á Vikunni, Rás 1 og 2, Skjáeinum og Stöð 2. Hún hefur síðustu ár stjórnað sunnudagsþáttum Rásar 2. 


"Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Sirrý til starfa," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar. "Við byrjuðum smátt fyrir mánuði og ætlum okkur að vaxa hægt og rólega og þar mun muna mikið um hjálp Sirrýjar."