Sjónvarpsskonan Sirrý er byrjuð með nýjan gjafaleik í þætti sínum Fólk með Sirrý sem frumsýndur er á þriðjudagskvöldum en fyrst um sinn eru í boði forláta sængurföt frá LIN design.
Sirrý er hins vegar ekki alveg sama hver hreppir þessa veglegu og fallegu gjöf sem á eflaust eftir að ylja einhverjum heppnum frónverja á komandi árum. Í þætti sínum í gær óskaði hún eftir því að heyra sögur af einstaklingum, pörum eða fólki sem ætti skilið að fá þessa gjöf af einhverjum ástæðum. Hún biður um tilnefningar inn á netfang sitt [email protected] og þangað er því um að gera að senda sannfærandi sögur af fólki sem á öðrum fremur skilið á fá þennan glaðning núna í júníbyrjun.
Sirrý mun svo tilkynna í næsta þætti sínum á þriðjudagskvöld hver hreppir sængurfötin og af hverju hann á þau skilið.