Sirrý fer á tónleika í akranesvita

Sjónvarpskonan Sirrý situr vanalega í sínum gráa stól á Hringbrautinni á þriðjudagskvöldum en á fimmtudögum tekur hún á rás út um allt samfélagið í leit sinni að skapandi og skemmtilegu fólki.

 

Þátturinn í kvöld er þar engin undantekning, en þá skellir hún sér í fylgd Friðþjófs Helgasonar kvikmyndatökumanns á undursamlega tónleika í Akranesvita. Annars fara þau víða eins og öllum fyrir lífsins listum sínum - og fyrst raunar í þetta sinn til Bakarameistarans til að undirbúa sig undir lautarferð, því það er auðvitað líka ferðalagið en ekki bara áfangastaðurinn sem máli skiptir. Með í för var nýjasta skáldsaga Lizu Marklund og þegar komið var upp á Akranes blasti við allur Faxaflóinn, slíkt er útsýnið úr Akranesvita. 

 

Hilmar Sigvaldason er vitavörður og stendur fyrir fjölbreyttri menningarstarfsemi í vitanum. Á vegi sjónvarpsfólksins var Anna Jónsdóttir söngkona sem var að undirbúa sig undir Jónsmessutónleika þegar Hringbraut kíkti í vitann og bauð hún upp á tónleika með íslenskum þjóðlögum. Fjöldi fólks lagði leið sína í vitann og hljómburðurinn er einstakur. 

 

Þá er líka heilsað upp á Ingibjörgu Pálmadóttur fyrrum heilbrigðisráðherra sem var að undirbúa nýja sýningu á Safnasvæðinu á Akranesi sem nefnist Saga líknandi handa. Þar er sýnd saga ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga í gegnum tíðina. 

 

Þátturinn er frumsýndur fimmtudag kl. 21:30 og endursýndur á föstudag og alltaf til staðar á hringbraut.is.