Þáttagerðarkonunni Sirrý á Hringbraut er ekkert mannlegt óviðkomandi og það kemur vel fram í nýjum þætti hennar Lífsins list á sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan 21.30 en þá fylgir hún uppistandaranum Bergvini Oddssyn inn á Litla-Hraun þar sem hann skemmtir föngum eins og honum einum er lagið.
Bergvin, eða Beggi blindi eins og hann kallar sig á listamannsvísu, er einnig formaður Blindrafélagsins sem er að hefja landsátak í þessari viku undir heitinu Blindir sjá. Bergvin mun ræða átakið við Sirrý í þættinum en því er ætlað að sýna hvað blint og sjónskert fólk á Íslandi er breiður og ólíkur hópur innbyrðis, en mikill meirihluti félaga í Blindrafélaginu hefur sjón þótt hún geti raunar verið allt frá því að vera mjög þröng og lítil yfir í það að vera nokkuð þokkaleg - og eins eru þeir færir um langtum fleiri störf en margur ætlar.
Þáttunum Lífsins list er ætlað að fjalla um menningarlífið í landinu í víðum skilningi, en þriðji þátturinn fer í loftið í kvöld þar sem Sirrý spókar sig um borg og bý og sækir alls konar listviðburði og menningarhús heim.