Sirrý byrjar með nýjan þátt á morgun

Dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar, sem fagnar tveggja mánaða afmæli í lok vikunnar, verður efld að mun frá og með þessari viku. Frumsýnt efni stöðvarinnar, sem varað hefur í klukkustund á milli 21.00 og 22.00 á hverju kvöldi virka daga verður nú 2 tímar frá 20.00 til 22.00 á hverju kvöldi. Efnið er svo endursýnt frá 22.00 til miðnættis og á völdum tímum daginn eftir.


Eðli málsins samkvæmt kallar þessi breyting á aukna dagskrárgerð á Hringbraut - og ber þar einna hæst að sjónvarpskonan Sirrý hefur nýja þáttaröð annaðkvöld sem ber sama heiti og hún notaði á vinsæla þætti sína á árum áður, Fólk með Sirrý. Þessir þættir hennar um mannlíf og mannrækt verða vikulega frumsýndir klukkan 20.00 á þriðjudagskvöldum. Sirrý verður einnig með vikulega þætti um listalíf landsmanna á fimmtudagskvöldum klukkan 21.30 sem nefnast Líf & list þar sem hún fær til sín skapandi fólk sem auðgar menningarlíf landsmanna.


Heimildarþættir fá sérstakt pláss í dagskránni milli klukkan 21.00 og 22.00 á mánudagskvöldum og þá byrjar nýr þáttur Lóu Þórhallsdóttur, formanns Félags kvenna í atvinnulífinu á þriðjudagskvöld í næstu viku. Þættir Karls Ágústs, Helgin og Bjarkar Eiðsdóttur, Kvennaráð verða báðir lengdir um 15 mínútur og það á einnig við um þætti Sigmundar Ernis, Mannamál.


Nýi fótboltaþátturinn 433 verður svo áfram á sínum stað á miuðvikudagskvöldum þar sem íslenskir knattspyrnusnillingar á Bretlandseyjum verða heimsóttir næstu vikurnar og þá eru ónefndir Eðaltónar, íslenskir tónlistarþættir sem munu skreyta dagskrá stöðvarinnar vikulega.


Fjöldi annarra þátta er og í undirbúningi og verða kynntir síðar.